Skilmálar

Afhending og áhætta

Afgreiðslutími pantana er 1-3 virkir dagar. Sé vara ekki til á lager munum við setja okkur í samband við kaupanda og ef viðkomandi kýs að bíða ekki eftir vörunni þá endurgreiðum við hana.

Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang og velja réttan afhendingarmáta við pöntun. Vörur eru að jafnaði póstlagðar næsta virka dag eftir pöntun. Pantanir eru ekki afgreiddar fyrr en vara hefur verið greidd.

Áhætta af söluhlut flyst yfir til neytenda þegar hann hefur veitt honum viðtöku sbr. 14. gr. laga um neytendakaup nr. 48/2003. Þegar áhætta af hinni seldu vöru hefur flust yfir til kaupanda hefst skylda hans til þess að greiða kaupverðið þótt varan kunni eftir það að farast, skemmast eða rýrna ef um er að ræða atvik sem ekki má rekja með beinum hætti til seljanda.

Greiðsla og sendingarkostnaður

Hægt er að greiða með kredit- og debetkortumm Netgíró, Pei eða með millifærslu.

Ef greitt er með kortum eða greiðslusíðum ferð greiðslan fram í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd/Netgíró/Pei. Greiðslur með kredit- og debetkortum eiga sér stað í umhverfi Rapyd þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram.

Pomp og prakt hefur ekki aðgang að né geymir kortaupplýsingar.

Óski kaupandi eftir því að greiða með millifærslu skal leggja inn á reikning Pomp og prakt ehf. innan 24 klst. frá kaupum og senda kvittun úr heimabanka á verslun@pompogprakt.is.  Berist greiðsla ekki innan þess tíma er pöntunin ógild.

Reikningsnúmer: 0133-26-003339 
Kennitala: 580719-1120

 

Sendingarkostnaður er 990 kr. fyrir sendingar í póstbox, 990 kr. fyrir sendingar á pósthús, 1190 kr. fyrir heimsendingar með póstinum. 

Frí heimsending er á pöntunum ef verslað er fyrir 20.000 kr. og yfir nema annað sé tekið fram. Sé greitt fyrir heimsendingu með pósti tekur Pomp og prakt ekki ábyrgð á því ef Íslandspóstur sendir ekki upp að dyrum. 

Verð

Pomp og Prakt áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist, þar sem það á við, áður en greiðsla fer fram.

Vöruskil

Skilaréttur er 14 dagar frá móttöku vöru. Kaupandi er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka. Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Pomp og prakt

Kaupandi getur komið ósk sinni um skipti/skil á vöru á framfæri við seljanda með tölvupósti á verslun@pompogprakt.is

Gölluð vara

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á verslun@pompogprakt.is með upplýsingum um galla vörunnar. Tilkynningarfrestur kaupanda vegna galla í vöru er tvö ár eða eftir atvikum fimm ár ef hluti er ætlaður verulega lengri endingatími en almennt gerist sbr. 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Fyrirvari

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila skal bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Dugir það ekki verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á verslun@pompogprakt.is